
Bukayo Saka gæti snúið aftur til leiks með Arsenal á næstu dögum, samkvæmt knattspyrnustjóranum Mikel Arteta.
Saka hefur verið frá vegna meiðsla á hásin síðan í tapinu gegn Manchester City í úrslitum deildarbikarsins, en Arteta segir bata á góðri leið.
„Það eru framfarir og vonandi er þetta spurning um daga, ekki vikur,“ sagði Arteta.
Arsenal glímir þó við fleiri meiðslavandræði fyrir seinni leikinn gegn Sporting í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Óvissa er með þátttöku Declan Rice. Þá eru Jurrien Timber, Martin Odegaard og Mikel Merino á meiðslalistanum.
Þrátt fyrir það er Arteta bjartsýnn. „Við þurfum að sýna eldmóð. Þetta er stórt tækifæri, bæði í Meistaradeildinni og deildinni,“ sagði hann, en Arsenal hefur gengið erfiðlega undanfarnar vikur.