fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú hefur örugglega lent í því að hafa keypt gott brauð í bakaríinu og að hafa ekki reiknað með öðru en að það héldist gott út vikuna. En eftir tvo daga var það orðið svo þurrt að það var næstum ómögulegt að tyggja það.

Þá vaknaði eflaust spurningin um hvað þú gerðir rangt? Þá er rétt að hafa í huga að þegar kemur að því að geyma brauð eru margir þættir sem þarf að taka með í reikninginn.

Joost Arijs, bakari, segir að bæði umbúðirnar og ástand brauðsins skipti miklu máli. Gelderlander skýrir frá þessu og hefur eftir Arijs að pappírspokarnir, sem bakarí nota, innihaldi paraffín sem eigi að koma í veg fyrir að brauðið þorni. Hann ráðleggur fólki að láta ekki skera brauðið í bakaríinu.

Ástæðan er að hans sögn að pappírspokar eru góðir til að geyma skorið brauð í en séu þó ekki alltaf besta lausnin. Hann sagðist ráðleggja fólki að geyma brauð í silkipappír eða bara í handklæði. Með því haldist það ferskt og mjúkt í minnst tvo til þrjá daga.

Ef búið er að skera brauðið, þá styttist líftími þess og því þarf að borða það hratt til að koma í veg fyrir að sneiðarnar þorni.

Hvað varðar plastpoka, þá bendir hann á að það sé ekki gott að geyma brauð í þeim. Ástæðan er að plastið getur valdið því að raki myndast og stökk brauðskorpan verður ekki svo stökk lengur. Af þessum sökum er pappírspoki betri lausn. Brauðkassi úr plasti eða málmi getur líka verið góð fjárfesting.

Svo er auðvitað hægt að frysta brauð en bakarinn er ekki mjög hrifinn af þeim möguleika og segir að frostið eyðileggi karakter brauðsins og hafi áhrif á bragðið. Þess utan lengi frysting ekki endilega endingartíma brauðsins eftir að það er tekið úr frosti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Í gær

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Í gær

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Í gær

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins