
Það að halda fast í hluti, sem maður hefur ekki not fyrir, lokar fyrir orkuna sem þarf til að takast á við eitthvað nýtt og á auðvitað hlut að máli varðandi draslaraskap á heimilinu.
Ef þú vilt koma betra skipulagi á heimilið og létta þér þannig lífið, þá nefnum við hér fyrir neðan til sögunnar nokkra hluti sem þú getur auðveldlega losað þig við án þess að fá samviskubit og þess utan er afar ólíklegt að þú munir nokkurn tímann nota þessa hluti.
Gömul sýnishorn af snyrtivörum – Hver hefur ekki geymt litlar sjampóflöskur (sýnishorn), ilmvatn eða rakakrem „fyrir ferðalagið“. Vandinn er að þessar vörur hafa takmarkaðan líftíma og hætta að virka eftir ákveðinn tíma. Það er því bara að nota þær strax eða henda þeim og losa sig þannig við allar þessar litlu flöskur.
Merktir pennar – Þeir eru út um allt, í bankanum, á sýningum, á fundum. Vandinn er að þeir eru yfirleitt frekar lélegir og gera ekkert annað en taka pláss í skúffunum. Veldu bara tvo eða þrjá góða penna og hentu hinum.
Pokar – Sumir pokar virðast vera ansi góðir til síns brúks en ef þú átt meira en fimm poka sem „eru of flottir til að henda“ þá ertu líklega búinn að ná efri mörkum þess sem telst skynsamlegt að geyma. Geymdu bara nokkra og hentu restinni.
Kassar utan af rafmagnstækjum – Það er svo sem skiljanlegt að sumir vilji geyma kassana utan af rafmagnstækjum þar til „ábyrgðin er runnin út“ en ef hún er runnin út, þá gera þessir kassar ekkert annað en að taka pláss. Það er því bara að setja þá í endurvinnslugáminn.
Auglýsingaseglar á ísskápnum – Þessar litlu gjafir eru skemmtilegar í upphafi en með tímanum fjölgar seglunum og enda með að láta eldhúsið líta draslaralega út. Geymdu þá sem hafa tilfinningalegt gildi og losaðu þig við hina.
Gamlar kvittanir – Ef kvittanirnar eru fyrir einhverju öðru en hlutum sem eru enn í ábyrgð, þá er alveg óhætt að henda þeim. Pappírsstaflar eru einn versti óvinur skipulags á heimilum.