fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 18:30

Harry og Vilhjálmur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur prins, sem mun verða konungur þegar Karl faðir hans deyr, ætlar ekki að leyfa einkabróður sínum, Harry, að vera viðstaddur krýningarathöfnina þegar þar að kemur.

Þetta kemur fram í nýrri bók, „Betrayal: Power, Deceit and the Fight for the Future of the Royal Family“, eftir Tom Bower. Hann segir að „gestur“ sem var viðstaddur veislu, sem Karl konungur hélt í tilefni krýningar sinnar, hafi sagt honum þetta. Hafi „gesturinn“ sagt að Vilhjálmur hafi ákveðið þetta kvöld að Harry verði ekki boðið í krýningarathöfnina. Express skýrir frá þessu.

Harry var viðstaddur krýningu föður síns en eiginkona hans, Meghan, og börn þeirra voru ekki viðstödd athöfnina.

Harry gegndi engu hlutverki við athöfnina og kom ekki út á svalir Buckingham hallar með öðrum úr konungsfjölskyldunni á krýningardeginum.

Bræðurnir hafa ekki sést saman opinberlega síðan í ágúst 2024 þegar þeir sóttu báðir útför Robert Fellowes, lávarðar, sem var mágur móður þeirra. The Sun segir að bræðurnir hafi „haldið sig frá hvor öðrum“ í útförinni og hafi ekki sést ræðast við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Í gær

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna
Pressan
Í gær

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Í gær

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?