

Kópavogsbær hefur opinberað leigusamning vegna Vetrargarðsins í Smáralind. Er hann 50 milljónir króna á ári í 10 ár, eða 500 milljónir króna í heildina. Sagði Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri það rangt að leigusamningurinn væri 1,5 milljarður og sagði Theodóru Sigurlaugu Þorsteinsdóttur, oddvita Viðreisnar, hafa haldið því fram.
Theodóra hafði hins vegar haldið því fram að allur rekstur bæjarins í Vetrargarðinum myndi kosta 1,5 milljarða króna, ekki aðeins leigan sjálf. Svarar hún Ásdísi fullum hálsi í færslu á samfélagsmiðlum og sakar Ásdísi um óheilindi.
„Bæjarstjórinn í Kópavogi hefur aldrei verið í neinum vandræðum með að segja ósatt! Èg talaði um rekstur – ekki leigu!“ segir Theodóra. Hún standi jafn fram fram við allt sem komið hafi fram í greinum sínum um málið. Þá fagni hún því að trúnaði hafi verið aflétt, eins og hún sjálf hafi kallað eftir.
Þessu svarar Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi, og vísar í frétt Vísis um málið þar sem talað er um 1,5 milljarða króna leigu í fyrirsögn. Það virðist hins vegar vera misskilningur, því að Theodóra talaði um rekstur en ekki leigu.
Andri Steinn viðurkennir líka að reksturinn sé 1,5 milljarður króna og segist ekki sjá ofsjónum yfir því. Stærsti hlutinn sé launakostnaður.
„1,5 milljarður af 600 milljarða veltu á sama tíma. Ég geri ekki lítið úr því að þetta kosti 0,25% af rekstri bæjarins – en það er skýrt ákall frá íbúum að gera betur í menningu og þetta skref er stigið til að mæta því!“ segir Andri Steinn í svari við færslu Theodóru. „Ég sé a.m.k. ekki ofsjónum yfir þessum kostnaði, enda er honum haldið á lágmarki um leið og vandað er mjög til verka. Þetta verður eitt flottasta bókasafn/menningarmiðstöð á öllu landinu.“
Theodóra telur hins vegar að þessi 1,5 sé vanáætlaður.
„Það er auk þess vanáætlað því þið áætlið ekki fyrir viðburðum. Af hverju máttum við ekki ekki taka opna umræðu um þetta áður en þið skrifið undir,“ segir hún.