fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. febrúar 2026 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi varnarmaður Barcelona, Jérémy Mathieu, hefur útskýrt ástæður þess að hann starfar í íþróttaverslun í Frakklandi, aðeins sex árum eftir að hann lagði skóna á hilluna.

Mathieu, sem er 42 ára gamall, var á sínum tíma einn besti miðvörður Frakka og vann meðal annars tvo La Liga titla, tvo bikara og Meistaradeild Evrópu með Barcelona á farsælum ferli. Líf hans hefur þó breyst verulega síðan hann hætti í fótbolta.

Á síðasta ári vöktu myndir af honum mikla athygli þegar hann sást vinna í Intersport-verslun milli Aix-en-Provence og Marseille, þar sem hann stýrir knattspyrnudeild verslunarinnar. Margir stuðningsmenn mættu á staðinn til að hitta hann.

Mathieu þénaði á sínum tíma um 100 þúsund pund á viku hjá Barcelona, sem gerir núverandi stöðu hans enn óvæntari.

Í viðtali við beIN Sports viðurkennir hann að hann hafi átt erfitt uppdráttar eftir ferilinn, bæði fjárhagslega og andlega. Hann sagði að hann væri í miðju dómsmáli og að starfið hjálpi sér að halda félagslegu lífi.

Mathieu hefur einnig glímt við þunglyndi og segir að hann hafi ekki náð sér að fullu. Fyrrum liðsfélagi hans hjálpaði honum að fá starfið til að komast aftur út á meðal fólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana