fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum sakaður um ofbeldi og kynferðislega áreitni á þorrablóti

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 12:36

Helgi Jensson lögreglustjóri á Vestfjörðum. Mynd/Lögreglan á Vestfjörðum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, hefur verið tilkynntur til Nefndar um eftirlit með lögreglu vegna áreitni og ofbeldi sem hann er sakaður um að hafa beitt á þorrablóti á Flateyri.

Vísir greinir frá þessu.

Kemur fram að tveir einstaklingar hafi tilkynnt Helga. Önnur kvörtunin lítur að kynferðislegri áreitni sem hann er sakaður um að hafa beitt konu á þorrablótinu Stútungi á Flateyri þann 14. febrúar síðastliðinn. Eigi hann að hafa sagt að konan þyrfti að hlýða honum þar sem hann væri lögreglustjóri.

Hin tilkynningin lýtur að meintu líkamlegu ofbeldi. Það er að Helgi er sakaður um að hafa veist að öðrum karlmanni á sama þorrablóti.

Í frétt Vísis er Helgi inntur um málið og segist hann ekki vita til kærunnar. Segist hann hafa verið á téðu þorrablóti en þar hafi ekkert komið upp.

Þá er vísað til eldri frétta um Helga. Það er frétt árið 1997 í Helgarpóstinum þar sem sagt var að hann hefði beitt tvo menn ofbeldi, þar af annað á þorrablóti á Egilsstöðum. En þá var hann starfsmaður sýslumannsembættisins á Austfjörðum. Vísaði hann þeim ásökunum á bug.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Fréttir
Í gær

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova