fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Forsetinn tjáir sig um meint kynþáttaníð fyrir átökin á morgun

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Benfica, Rui Costa, hefur brugðist við ásökunum um að Gianluca Prestianni hafi gerst sekur um kynþáttaníð í garð Vinicius Junior í fyrri leik liðanna í umspili Meistaradeildarinnar í Lissabon í síðustu viku.

Vinicius skoraði sigurmark Real Madrid í 1-0 sigri, en leikurinn féll í skuggann af ásökunum um að Prestianni hefði notað niðrandi orð vegna húðlitar Brasilíumannsins. Kylian Mbappe sagðist til að mynda hafa heyrt argentínska leikmanninn segja „api“ fimm sinnum.

UEFA hefur sett Prestianni í bráðabirgðabann í einn leik á meðan rannsókn stendur yfir og hann missir því af seinni leiknum á Santiago Bernabeu á morgun. Prestianni hefur neitað sök og sagt að Vinicius hafi misskilið hann. Benfica hefur áfrýjað ákvörðuninni.

Costa sagði félagið standa að fullu gegn kynþáttafordómum og að Benfica sé fyrirmyndafélag í þeim efnum. Hann fullyrti að Prestianni sé ekki rasisti og að hann myndi aldrei leyfa rasista að spila fyrir félagið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana