fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Því velt upp hvort forseta FIFA verði refsað fyrir athæfi sitt á fundi Trump

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti FIFA, Gianni Infantino, gæti hafa brotið siðareglur FIFA eftir þátttöku sína á fyrsta fundi svokallaðrar Friðarnefndar í Washington.

Fundinum var stýrt af Donald Trump. Um 60 þjóðarleiðtogum var boðið að taka þátt, þó nokkur stór ríki hafi ekki mætt.

Á fundinum var heitið að verja miklum fjármunum í neyðarpakka fyrir Gaza og rætt um enduruppbyggingu svæðisins í tengslum við vopnahléstillögu sem nýtur stuðnings Bandaríkjanna.

Infantino ávarpaði fundinn og kynnti hugmyndir um uppbyggingu knattspyrnuinnviða á Gaza-svæðinu.

Athygli hefur þó vakið myndband þar sem Infantino sést með rauða húfu með áletruninni „USA“. Samkvæmt 15. grein siðareglna FIFA skulu þeir sem bundnir eru reglunum sýna pólitískt hlutleysi.

Brot gegn reglunum geta varðað sekt upp á um eina og hálfa milljóna króna og allt að tveggja ára bann frá störfum innan knattspyrnunnar. Hins vegar er óljóst á þessu stigi hvort framkoma Infantino teljist raunverulegt brot á siðareglunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana