

Ívar Örn Árnason er á leið í til Breiðabliks frá KA og ættu skiptin að ganga í gegn á næstunni.
Ívar Örn er 31 árs gamall miðvörður sem er lykilmaður fyrir KA, en Breiðablik vill styrkja þá stöðu og gerir það með því að fá Ívar.
Kostar hann Kópavogsfélagið töluverða upphæð. Fótbolti.net segir upphæðina um 15 milljónir króna. Í Dr. Football var rætt um að hún væri einhvers staðar á milli 10 og 15 milljóna króna.
Ljóst er að það er blóðtaka fyrir KA, sem hafnaði í 7. sæti Bestu deildarinnar í fyrra, að missa Ívar. Blikar enduðu þremur sætum ofar og misstu af Evrópusæti en ætla sér stærri hluti í ár.