fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Reiður út í United sem bannaði honum að fara í gær

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tyrell Malacia, vinstri bakvörður Manchester United, er sagður mjög ósáttur við ákvörðun félagsins og Jason Wilcox, eftir að hann bannaði honum að fara frá félaginu á síðasta degi janúargluggans.

Malacia var sagður á leið til Tyrklands og undirbúa læknisskoðun áður en Wilcox hringdi í hann í síðustu stundu og tilkynnti að hann yrði að snúa til Englands aftur og klára tímabilið hjá United.

Ákvörðunin var sögð tekin vegna meiðsla hjá öðrum bakvörðum hjá United, sem skapaði nauðsyn á því að halda Malacia í leikmannahópnum.

Vinstri bakvörðurinn, sem hefur átt erfitt uppdráttar með takmörkuðum spilatíma, á samning við United út yfirstandandi tímabil og hefur aðeins tekið eina stutta innkomu á þessu tímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana