fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Óhugnanlegt myndband sýnir þegar ungbarn datt úr bíl á ferð

Pressan
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband sem sýnir þegar 19 mánaða barn dettur úr bíl á ferð hefur vakið talsverðan óhug. Atvikið átti sér stað í borginni Fullerton í Kaliforníu á dögunum.

Á myndbandinu má sjá þegar dyrnar á svörtum jepplingi opnast skyndilega þegar bíllinn er í beygju á gatnamótum.

Út úr bílnum fellur lítið barn og sést ökumaðurinn, móðir barnsins, nauðhemla í kjölfarið. Hún hleypur svo út og sækir barnið áður en hún heldur ferð sinni áfram.

Í frétt New York Post kemur fram að atvikið hafi átt sér stað þann 20. janúar síðastliðinn. Barnið var flutt á sjúkrahús í kjölfarið en hlaut ekki alvarleg meiðsl.

Eftir að myndbandið fór í dreifingu á netinu bar lögregla kennsl á ökumanninn sem heitir Jacqueline Hernandez og er 35 ára. Hún hefur verið kærð fyrir að stefna velferð barnsins í hættu.

Kristy Wells, upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Fullerton, segir við New York Post að það sé mikið lán að ekki hafi farið verr. Ljóst er að barnið var ekki í viðurkenndum barnabílstól og hvetur Kristy foreldra til að nota viðeigandi öryggisbúnað til að tryggja öryggi barna sinna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þessa ónauðsynlegu hluti eiga margir erfitt með að losa sig við

Þessa ónauðsynlegu hluti eiga margir erfitt með að losa sig við
Pressan
Í gær

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Í gær

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Í gær

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump