fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Terry skálaði fyrir tapi Arsenal á samfélagsmiðlum

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 26. janúar 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

John Terry opnaði vínsflösku til að fagna því að met Chelsea stæði áfram óhaggað eftir gærdaginn í ensku úrvalsdeildinni.

Chelsea, með Terry í lykilhlutverki, fékk aðeins á sig 15 mörk í 38 leikjum í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2004-2005, færri mörk en nokkurt lið hefur fengið á sig á heilu tímabili.

Topplið Arsenal hafði fengið á sig 14 mörk áður en kom að 2-3 tapinu gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær og ljóst að Skytturnar bæta ekki metið.

„Metið er öruggt í eitt tímabil í viðbót. Petr Čech, Paulo Ferreira, Ricardo Carvalho og William Gallas, það er kominn tími til að fagna,“ sagði Terry með flöskuna á Instagram.

„Ég var pínu áhyggjufullur eftir sterka byrjun Arsenal, en það er bara janúar og metið er þegar farið. Ég held þetta met verði aldrei slegið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham