fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Þetta eru breytingarnar sem Carrick hefur innleitt á skömmum tíma á Old Trafford

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick hefur strax tekist að setja sitt handbragð á lið Manchester United eftir að hann tók við sem bráðabirgðastjóri liðsins út tímabilið.

Carrick hefur þegar gert nokkrar breytingar bak við tjöldin sem hafa vakið jákvæð viðbrögð innan félagsins. Í síðustu viku mætti Carrick ásamt þjálfarateymi sínu, þar á meðal Jonathan Woodgate og Steve Holland, á leik U21 liðs United. Slíkt var ekki algengt í tíð Ruben Amorim og sendir skýr skilaboð um aukna áherslu á akademíuna.

Carrick hefur einnig endurvakið traust á Kobbie Mainoo, sem var lítið notaður undir stjórn Amorim. Mainoo byrjaði í grannaslagnum gegn Manchester City og var valinn maður leiksins.

Að auki hefur Carrick innleitt styttri og ákafari æfingar, auk meiri einstaklingsþjálfun og persónubundnari nálgun.

Smávægileg breyting hefur einnig verið gerð á leikdagsrútínunni, þar sem liðið mætir nú aðeins seinna á leikstað en áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham