fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Tvö stór nöfn efst á blaði í Sádí Arabíu fyrir sumarið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 16:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sádi-arabíska úrvalsdeildin stefnir á stóri félagaskipti í sumar og verða tveir af stærstu stjörnum heims í brennidepli. Samkvæmt Telegraph eru Mohamed Salah, sóknarmaður Liverpool og egypska landsliðsins, og Vinícius Júnior, kantmaður Real Madrid og brasilíska landsliðsins, helstu skotmörk deildarinnar á komandi sumri.

Salah, sem er 33 ára gamall, hefur verið lykilmaður hjá Liverpool í mörg ár og nýtur mikillar virðingar á heimsvísu. Vinícius Jr, 25 ára, er aftur á móti einn stærsti leikmaður heims um þessar mundir og hefur verið burðarás í sóknarleik Real Madrid.

Enskir miðlar segja að forráðamenn í Sádí Arabíu telji öruggt að Salah fari frá Liverpool.

Yfirmenn Sádi-deildarinnar ætla sér að halda áfram að laða að heimsþekkt nöfn til að auka alþjóðlegt vægi deildarinnar enn frekar. Áhugi á Salah hefur verið til staðar um tíma, en það kæmi á óvart ef félög í Sádi-Arabíu myndu einnig ná að sannfæra Real Madrid um að láta Vinícius Jr fara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham