fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Shearer segir aðeins tvö lið geta unnið Meistaradeildina

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 14:00

Alan Shearer, fyrrverandi leikmaður Newcastle United/GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fótboltagoðsögnin Alan Shearer telur að aðeins eitt lið geti komið í veg fyrir að Arsenal vinni Meistaradeild Evrópu á þessu tímabili, Evrópumeistarar Paris Saint-Germain.

Arsenal héldu fullkomnu gengi sínu í keppninni áfram með 3-1 sigri á Inter í gær, þar sem Gabriel Jesus skoraði tvö mörk og Viktor Gyökeres bætti við því þriðja. Liðið er með fullt hús á toppi deildarkeppninnar eftir sjö leiki.

„Það er enginn vafi á því að þetta Arsenal-lið á raunhæfan möguleika á að vera í úrslitaleiknum. En miðað við það sem PSG gerði í fyrra og þá leikmenn sem þeir hafa, þá hallast ég örlítið að þeim,“ segir Shearer.

Aðspurður hverjir myndu mætast í úrslitum sagði hann einfaldlega: „PSG gegn Arsenal. Með sjálfstraustið og trúna sem Arsenal hafa núna, þá verða þeir ekki langt frá því að vinna.“

Shearer spáir einnig Arsenal Englandsmeistaratitlinum. „Ég held þeir klári deildina. Þeir eru svo sterkir varnarlega og gefa einfaldlega ekki mörg færi á sér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana