fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Carragher nefnir fjóra aðila sem hann telur að United eigi að reyna að fá til að taka við

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Carragher hefur sett saman stuttan lista yfir fjóra knattspyrnustjóra sem hann telur að Manchester United eigi að velja úr þegar félagið skipar nýjan fastan stjóra í sumar.

Á lista Carraghers eru Julian Nagelsmann, Thomas Tuchel, Luis Enrique og Eddie Howe. Fyrrverandi Liverpool-maðurinn setti fram skoðun sína í þættinum Monday Night Football á Sky Sports, þar sem hann fór yfir mögulega kosti fyrir United.

Michael Carrick, fyrrverandi miðjumaður United, er nú með liðið í bráðabirgðastjórn til loka tímabilsins og stýrði meðal annars 2-0 sigri á Manchester City í derby-leiknum um helgina. Þrátt fyrir það er ljóst að United hyggst ráða nýjan fastan knattspyrnustjóra að tímabilinu loknu, í stað Carricks og til lengri tíma litið Ruben Amorim.

Í þættinum fékk Carragher lista með 25 nöfnum, skipt í flokka eins og landsliðsþjálfara, þjálfara sem eru lausir og þá sem eru nú þegar með félagslið. Þar á meðal voru stór nöfn á borð við Carlo Ancelotti, sem stýrir Brasilíu, Thomas Tuchel með England, nýlega rekinn Real Madrid-stjóri Xabi Alonso og Oliver Glasner hjá Crystal Palace.

Carragher fór kerfisbundið yfir listann og strikaði út nánast alla nema þessa fjóra. Hann útskýrði jafnframt hvers vegna hann telur að hinir eigi ekk, eða muni ekki stýra Manchester United á næsta tímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham