
Thierry Henry segir stjórnendur Manchester United verða að móta skýra stefnu áður en þeir velja næsta varanlega knattspyrnustjóra liðsins.
Michael Carrick er tímabundið við stjórnvölinn til loka tímabils eftir brottrekstur Ruben Amorim, sem gefur félaginu svigrúm til að taka upplýsta ákvörðun.
Carrick byrjaði vel með 2-0 sigri á Manchester City, en Henry varar við því að einstök úrslit dugi ekki ein og sér.
„Hvað vilja þeir að Manchester United sé?“ Ég sé ekki skýra sjálfsmynd þegar ég horfi utan frá, hvaða DNA er félagið með?“ segir Henry.
Henry bar United saman við Barcelona, þar sem félagið hafi alltaf haft skýra hugmyndafræði sem auðveldi val á stjórum. Hann benti á að United hafi farið ólíkar leiðir frá tíð Sir Alex Ferguson, með ólíkum stílum undir Moyes, Van Gaal, Mourinho, Solskjær, Ten Hag og Amorim.
Henry útilokaði þó ekki að Carrick yrði ráðinn til framtíðar. „Ef maðurinn sem er í starfinu stendur sig vel, af hverju ætti hann þá ekki að fá tækifæri áfram?“