fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Guardiola segist ekki geta hvílt örmagna Erling Haaland

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola viðurkennir að hann geti ekki hvílt Erling Haaland þegar Manchester City mætir Bodø/Glimt í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöld.

Guardiola sagði í síðustu viku að Haaland væri orðinn örmagna og frammistaða Norðmannsins var undir pari í tapinu gegn Manchester United í borgarslagnum á Old Trafford um helgina. Haaland haltraði til búningsklefa í hálfleik eftir að hafa fengið aðhlynningu í kjölfar samstuðs við Harry Maguire og var svo tekinn af velli á 80. mínútu eftir lítil áhrif á leikinn.

Þrátt fyrir þetta segist Guardiola ekki geta gefið Haaland hvíld fyrr en Omar Marmoush snýr aftur frá Afríkukeppni landsliða. Egyptinn verður ekki með í ferð City til Noregs og nýi leikmaðurinn Antoine Semenyo er ekki gjaldgengur í leikinn.

Haaland mun því leiða sókn City á ný í heimalandi sínu. Guardiola gaf til kynna að líklegra væri að hvíla hann í leikjum gegn Wolverhampton Wanderers eða Galatasaray síðar í vikunni, þegar Marmoush getur tekið við hlutverkinu.

„Nei, ég held að Omar fari ekki til Noregs,“ sagði Guardiola.

„Erling mun spila. Við þurfum hann. Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur. Við eigum marga stóra leiki fram undan, nánast á þriggja til fjögurra daga fresti, og við verðum að halda áfram.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana