
Barbara Björnsdóttir héraðsdómari sakar kollega sinn, Sigríði Hjaltested, um að hafa skrifað nafnlaust bréf til Dómstólasýslunnar þar sem hún var sökuð um framhjáhald með fyrrverandi yfirmanni sínum, Símoni Sigvaldasyni, núverandi Landsréttardómara.
Ummæli í þessa veru féllu er Barbara bar vitni í meiðyrðamáli Lögreglustjórans í Reykjavík gegn Margréti Friðriksdóttur, fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Barbara kærði ummæli Margrétar um sig til lögreglu en Margrét brást illa við sektardómi sem Barbara felldi yfir henni árið 2023, þar sem hún var sakfelld fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdar. Margrét kallaði Barböru mellu og sakaði hana um að hafa haldið framhjá til að skapa sér framgang í stöðu varadómstjóra við Héraðsdóm Reykjavíkur. Margrét bar vitni á undan Barböru:
Aðspurð ítrekaði Barbara að hún hefði staðfestar heimildir fyrir því að Sigríður Hjaltested hefði skrifað umrætt bréf. „Hefur lagt mig í einelti og ávallt brugðist illa við framgangi mínum í starfi,“ sagði hún um framkomu Sigríðar í sinn garð. Sagði hún jafnframt að Valtýr Sigurðsson, eiginmaður Sigríðar, hefði hótað því að gera bréfið opinbert. Barbara sagði jafnframt að Valtýr hefði sett sig í samband við verjanda Margrétar og afhent honum bréfið.
Aðspurð neitaði Barbara því að hafa átt í ástarsambandi við Símon. Segir hún að orðrómur um slíkt réttlæti engan veginn ummæli Margrétar um sig.
Verjandi Margrétar, Hilmar Garðar Þorsteinsson lögmaður, sagði að Barbara hefði dæmt Margréti saklausa í fangelsi. Þessu andmælti bæði Barbara og dómari málsins, Jónas Jóhannson. Jónas sagði að þetta væri rangt og það að manneskja væri sýknuð þýddi ekki að hún væri saklaus.
Barbara sagðist hafa sinnt starfi sínu sem héraðsdómari, fólki væri fyllilega heimilt að áfrýja dómum sínum til Landsréttar sem kæmist stundum að annarri niðurstöðu. Það væri ekki rétt að bregðast við dómum sem maður er ósáttur við með þeim hætti sem Margrét gerði.
Barbara sagði að ummæli Margrétar hefðu haft truflandi áhrif á hana og valdið henni mikilli vanlíðan.
Símon Sigvaldason landsréttardómari bar vitni og er Hilmar, verjandi Margrétar, spurði hvort hann hefði átt í ástarsambandi við Barböru sagðist hann ekki svara spurningum um ástarsambönd sín við aðrar konur en eiginkonu sína. Er nafnlausa bréfið var borið undir hann sagðist hann aldrei hafa séð það bréf en heyrt um tilvist þess. Þurfti hann síðan að ítreka fyrri svör sín um að hann svaraði ekki spurningum um ástarsambönd á meðan hann var giftur, en verjandi Margrétar beindi spurningum sínum aftur í þá átt.
Að loknum þessum vitnaleiðslum tók við málflutningur lögmanna ákæruvaldsins og Margrétar. Dómur í málinu verður kveðinn upp innan fjögurra vikna en samkæmt lögum getur ákæran á hendur Margréti varðað fangelsisvist.