
Hin ráðagóða Abby hefur svarað lesendum bandarískra fjölmiðla síðan á sjötta áratug síðustu aldar. Hún hefur verið svo vinsæl að eftir að hin upprunalega Abby, Pauline Esther Phillips, lést árið 2013 tók dóttir hennar, Jeanne Phillips, við keflinu.
Abby tekst á við ýmislegt sem brennur á lesendum hennar og endurspegla svör hennar stundum breytingar í samfélaginu sem fólk hefur ekki endilega áttað sig á.
Nýlega svaraði Abby konu nokkurri sem hafði áhyggjur af því hversu mikið tengdadóttir hennar drekkur.
„Elsti sonur minn, „Adam“, varð fimmtugur í síðasta mánuði. Hann og kona hans, „Lindy“, búa fjögurra klukkustunda akstri frá okkur. Þau buðu mér og eiginmanni mínum í afmælisveislu sem hún hélt fyrir hann. Dóttir Adams úr fyrra hjónabandi gat ekki mætt af einhverjum ástæðum.
Lindy drekkur oft of mikið. Á einum tímapunkti öskraði hún um hvernig „heimska dóttir“ Adams hefði ekki nennt að mæta í afmælisveisluna hans. Ég varð vægast sagt brjáluð. Ég sagði ekkert því vinir sonar míns höfðu ferðast á staðinn til að fagna með honum og ég vildi ekki spilla veislunni, og konan hans var greinilega mjög ölvuð.
Dótturdóttir mín á ekki gott samband við þau. Adam ættleiddi yngstu af þremur dætrum Lindy því tvær eldri voru giftar. Ég vil ekki lengur hafa neitt með Lindy að gera. Adam og faðir hans vita ekki hvað gerðist þetta kvöld. Við höfum ekki átt gott samband síðan Adam yfirgaf fyrri eiginkonu sína og börn fyrir Lindy. Ertu með einhver ráð fyrir mig? Kveðja Bít í tunguna á mér í Texas.“
Abby svaraði konunni með þessum orðum:
„ Adam veit að konan hans er drykkjusjúklingur sem missir stundum stjórn á sér. Þú nefndir ekki hvort hann hefur haldið sambandi við fyrrverandi konu sína eða dóttur sína. Það var kannski ekkert óvænt að dóttirin mætti ekki í afmælisveislu föður síns. Mitt ráð til þín er að segja ekki neitt og standast freistinguna til að tjá þig um þetta mál til að rugga bátnum ekki enn frekar.“