fbpx
Laugardagur 27.desember 2025
Fréttir

Trump svipti forseta Kólumbíu vegabréfsáritun –

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. september 2025 06:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að draga vegabréfsáritun Gustavo Petro, forseta Kólumbíu, tilbaka eftir að sá síðarnefndi lét til sín taka í mótmælum í New York í síðustu viku á meðan Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna stóð  þar sem þjóðarmorði Ísraela í Gaza var mótmælt. Hinn vinstri sinnaði og litríki Petro sagði aðp ákvörðun stjórnar Donald Trump væri til marks um það að Bandaríkin virði ekki lengur alþjóðalög. Áður hafði Petro einnig farið mikinn og krafist þess að árásir Bandaríkjanna á báta meintra fíkniefnainnflytjenda ætti að rannsaka sem sakamál.

Petro var síður en svo sáttur við þessa ákvörðun og  lét Donald Trump heyra það í færslum á X og sagðist hafa óskað eftir fundi með honum augliti til auglitis að ræða stöðuna í Gaza. Ætlaði Petro, að eigin sögn, að freista þess að fá Trump til þess að taka stöðu gegn þjóðarmorði.

„Konan þín, Herra Trump, eða dætutr, ættu að segja þér að það er ekki í lagi að drepa börn. Dætur mínar segja mér það,“ sagði ósáttur Petro í færslunum. Þar hvatti hann meðal annars Trump til þess að fjarlægja sig frá Hitler og hvatti hermenn Bandaríkjanna til þess að óhlýðnast skipunum hans.

Það er því með öllu óvíst hvort að Petro muni heimsækja Bandaríkin í bráð.

Gustavo Petro, forseti Kólumbíu
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hefur barist í meira en ár fyrir því að endurheimta búslóð sína að fullu

Hefur barist í meira en ár fyrir því að endurheimta búslóð sína að fullu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Maðurinn er fundinn

Maðurinn er fundinn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Færa menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar 2 milljónir króna

Færa menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar 2 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrirhugað að Gufunesmálið fari fyrir Landsrétt í febrúar

Fyrirhugað að Gufunesmálið fari fyrir Landsrétt í febrúar
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Segir þjóðina með þeim í liði eftir harmleikinn í Suður-Afríku – „Hjartað mitt er hjá Maríu 24-7“

Segir þjóðina með þeim í liði eftir harmleikinn í Suður-Afríku – „Hjartað mitt er hjá Maríu 24-7“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“