fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Fókus

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Fókus
Mánudaginn 16. júní 2025 17:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morguninn 7. desember 1941 rennur Bandaríkjamönnum seint úr minni. Þá gerðu Japanir árás á flotahöfn og herflugvelli Bandaríkjanna á eyjunni Ohau í Hawaii-eyjaklassanum. Árásin var fyrirvaralaus og án formlegrar stríðsyfirlýsingar. Almennt er talið að Japanir hafi ætlað sér í langvinnt stríð við Kína og hafi talið nær öruggt að Bandaríkin myndu skerast í leikinn. Til að koma í veg fyrir það hafi verið ákveðið að ráðast í skyndiárás á aðalflotastöð Bandaríkjanna á Hawaii til að lama hernaðarmátt þeirra á Kyrrahafi. Japanir fengju þar með rými til landvinninga og til að undirbúa sig undir að takast á við bandaríska flotann. Þessi áform heppnuðust og kom árásin Bandaríkjunum alfarið að óvörum. Alls fórust 2.390 Bandaríkjamenn í árásinni, tvö orrustuskip, eitt skotæfingaskip, tveir tundurspillar og 188 flugvélar. Fleiri hernaðargögn urðu fyrir tjóni. En Japönum tókst ekki að ná meginmarkmiði sínu, að eyðileggja flugmóðurskipaflota Bandaríkjanna.

Árásin þjappai svo bandarísku þjóðinni saman og degi eftir árásina lýstu Bandaríkin yfir stríði gegn Japan. Áður höfðu Bandaríkin ekkert ætlað að skipta sér að stríðsátökunum í Evrópu. En þarna urðu kaflaskil. Stríðið hafði komið til Bandaríkjanna og nú gátu þau ekki setið aðgerðarlaus lengur.

En var þetta svona? Var árásin fyrirvaralaus eða leyfðu ráðamenn Bandaríkjanna henni að gerast til að réttlæta þátttöku í heimsstyrjöldinni? Var þetta eitt stórt samsæri? Félagarnir í hlaðvarpinu Álhatturinn kafa ofan í þessa áhugaverðu kenningu í nýjasta þætti sínum.

Óvænt eða viðbúið?

Í lýsingu þáttarins segir:

„Eitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor. Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglegan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrjöldina eftir árás Japana á herstöðina Pearl Harbor þann 7. desember 1941. Árásin þótti mjög óvænt, rétt eins og þruma úr heiðskíru lofti og kom Bandaríkjamönnum og heimsbyggðinni allri í opna skjöldu. Aldrei hefði nokkurn Bandaríkjamann grunað að ráðist yrði á flotastöð hersins, hvað þá svona rétt í bakgarðinum heima fyrir. Rúmlega 3400 manns féllu í árásinni sem vakti upp mikla reiði og ótta hjá bandarísku þjóðinni.

Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti, sem hafði verið kjörinn m.a. vegna loforða um að Bandaríkin myndu ekki láta draga sig út í þátttöku í stríðinu varð að bregðast skjótt við og sýna að Bandaríkin væru engar undirlægjur sem létu vaða yfir sig á skítugum skónum. Bandaríkin brugðust því skjótt og örugglega við og svöruðu fyrir árásirnar af fullum krafti.

Stuðningur við þátttöku í stríðinu rauk upp meðal almennings og nýskráningum í herinn fjölgaði svo um munaði. Efnahagurinn sem hafði verið í tómu tjóni og algjöru rugli allt frá kreppunni miklu, tók skyndilega mikla hreppstjórabeygju og einhver mesta efnahagslega velsæld sögunnar tók við af harðindum og eymd. Mikið atvinnuleysi hafði plagað þjóðina og nú rétt eins og hendi væri veifað var það orðið að engu og allir sem á annað borð höfðu áhuga á að vinna gátu fengið vinnu og FDR var endurkjörinn forseti með yfirburðum. Oftar en einu sinni. Enginn Bandaríkjaforseti hefur setið jafn lengi á valdastóli eða náð viðlíka vinsældum og Franklin D. Roosevelt.

En getur virkilega verið að árás Japana hafi komið Bandaríkjunum í algjörlega opna skjöldu? Grunaði engan í hernum eða stjórninni nokkurn skapaðan hlut? Heyrst hefur að viðvaranir hafi borist frá bæði Kínverjum og Rússum auk þess sem hann er starfsmaður bandaríska sendiráðsins í Japan hafði virðað áhyggjur sínar af því að Japanir hygðust ráðast á bandaríska herstöð. Dulkóðunar- og dulmálssérfræðingar innan hersins höfðu ráðið í skeytasendingar Japana og einhverjir vilja meina að það sé ekki nokkur leið að Bandaríkin hafi ekki vitað af hinni yfirvofandi árás. Til eru sagnfræðingar sem segja að bandaríski rauði krossinn hafi flutt gífurlegt magn líkpoka, blóðbyrgða og lyfja til Hawaii á dögunum fyrir árásirnar og þá hefur það vakið mikla furðu Álhatta að stærstu flugmóðurskip Bandaríkjanna hafi skyndilega verið flutt úr höfn rétt áður en árásirnar urðu. Tilviljun?

Guðleg íhlutun eða var það gert af yfirlögðu ráði í ljósi þess sem koma skyldi.Þetta og svo margt fleira áhugavert og skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Bandaríkin hafi leyft árásunum á Pearl Harbor að gerast svo þau hefðu ástæðu til þess að taka þátt í seinni heimsstyrjöldinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bonnie Blue hætt við umdeildasta uppátæki sitt hingað til – Þetta kemur í stað „dýragarðsins“

Bonnie Blue hætt við umdeildasta uppátæki sitt hingað til – Þetta kemur í stað „dýragarðsins“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990