The Independent segir að orðrómar um þetta hafi farið á kreik í alþjóðlegum fjölmiðlum eftir að fjallað var um þetta á bloggsíðu um vín. Þar kom fram að áfengissala verði leyfð í landinu þegar HM fer fram.
Öll sala og neysla áfengis hefur verið bönnuð í Sádí-Arabíu í 73 ár en þar gilda ströng íslömsk lög.
Stjórnvöld hafa slakað aðeins á íhaldsseminni á síðustu misserum til að reyna að lokka ferðamenn til landsins sem og alþjóðleg fyrirtæki.
Áfengi er enn algjör bannvara en nú má fólk sækja viðburði sem voru áður algjörlega óhugsandi í landinu. Má þar nefna að dansa í reifpartíum, að horfa á fyrirsætur á tískusýningum og fara í bíó.
Fréttirnar um áfengi á HM kveiktu mikla umræðu á samfélagsmiðlum í landinu.