Þetta er Casey Means sem verður yfirmaður bandarískra lýðheilsumála, svokallaður „Surgeon General“ eða landlæknir Bandaríkjanna og um leið aðalráðgjafi Donald Trump varðandi heilbrigðismál.
Trump skýrði frá þessu á samfélagsmiðlinum sínum, Truth Social, í síðustu viku og sagði Casey hafa frábær „MAHA-meðmæli“. Þar á hann við „Make America Healthy Again“ slagorðið sem Robert F. Kennedy Jr., heilbrigðisráðherra, hefur breitt út.
Viðhorf Casey Mean varðandi bóluefni og getnaðarvarnir og einhverfu (sem hún telur að sé afleiðing af faraldri af völdum bóluefna og óholls matar) eru í takt við viðhorf verðandi yfirmanns hennar, Kennedy Jr. í heilbrigðisráðuneytinu.
Því er kannski engin furða að Kennedy Jr. sé ánægður með hana. „Bobby (Robert F. Kennedy Jr., innsk. blaðamanns) telur að hún sé frábær. Ég þekki hana ekki. Ég hlustaði á meðmæli Bobby. Ég hitti hana í gær og einu sinni fyrir það,“ sagði Trump.
Independent og Huffington Post segja að Casey Means sé ekkert annað en samsæriskenningasmiður vegna þeirra skoðana sem hún hefur sett fram. Það sama hefur einnig verið sagt um Robert F. Kennedy Jr.
Means hefur ekki beinan læknisfræðilega bakgrunn, þrátt fyrir að hún hafi stundað nám í læknisfræði við Stanford University. Hún hætti námi og hefur því ekki heimild til að stunda læknastörf.
Hún stofnaði fyrirtækið Levels sem hjálpar fólki að hafa stjórn á blóðsykri og fleiru. Hún hefur einnig tekjur af sölu fæðubótarefna, krema og á tei. Hún notfærir sér samfélagsmiðla mikið og birtir þar kostaðar auglýsingar. Hún er sem sagt áhrifavaldur.
Hún skrifaði einnig bókina „Good Energy“ með Calley Means, sem er bróðir hennar, um hvaða áhrif mataræði hefur á heilsufarið. Calley er ráðgjafi Robert F. Kennedy Jr.
Hún hefur oft komið fram í hlaðvörpum vinsælla hægrisinnaðra hlaðvarpsstjórnenda á borð við Tucker Carlson, Megyn Kelly og Joe Rogan. Í þeim hefur hún varið sjónarmið sem eru yfirleitt talin byggjast á samsæriskenningum.