fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Arne Slot trúir á kraftaverk á Anfield í kvöld

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arne Slot telur að Liverpool geti afrekað eitthvað sérstakt þegar liðið mætir Paris Saint-Germain í síðari leik liðanna í Meistaradeild Evrópu.

Liverpool er tveimur mörkum undir eftir fyrri leikinn í París þar sem PSG hafði betur. Slot segir þó að möguleikinn á endurkomu sé til staðar, þrátt fyrir erfiða stöðu gegn ríkjandi Evrópumeisturum.

„Það er trú á því að við getum gert eitthvað sérstakt, en við þurfum að vera alveg einstakir til að snúa þessu við,“ sagði Slot

„Þetta er erfitt verkefni, en ekki ómögulegt.“

Anfield hefur áður verið vettvangur ótrúlegra endurkoma, þar á meðal 4-0 sigur á Barcelona árið 2019 eftir 3-0 tap í fyrri leik. Fyrirliðinn Virgil van Dijk segir stuðningsmenn skipta lykilmáli í slíkum leikjum og hvetur þá til að skapa magnaða stemningu.

Liverpool kemur inn í leikinn eftir 2-0 sigur á Fulham um helgina og vonast til að byggja á þeirri frammistöðu. Leikurinn gæti orðið einn af eftirminnilegustu kvöldum tímabilsins á Anfield ef Liverpool tekst að snúa einvíginu sér í vil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham