

Tottenham er að fara í stærsta leik félagsins í áratugi án fyrirliðans Cristian Romero, sem er nú staddur í Argentínu á meðan liðið berst fyrir lífi sínu í ensku úrvalsdeildinni.
Romero meiddist alvarlega á hné í tapi gegn Sunderland í síðasta mánuði og verður ekki meira með á tímabilinu. Argentínski varnarmaðurinn hefur þó verið í kringum liðið undanfarna daga til að styðja liðsfélaga sína og Roberto De Zerbi stjóra.
Nú hefur hann hins vegar flogið til heimalands síns þar sem hann hyggst fylgjast með úrslitaleik argentínsku deildarinnar með æskufélagi sínu Belgrano.
Tottenham þarf að minnsta kosti eitt stig gegn Everton á sunnudag til að tryggja áframhaldandi veru sína í úrvalsdeildinni. Félagið hefur ekki fallið síðan árið 1977.
De Zerbi hrósaði Romero nýlega fyrir leiðtogahæfileika sína þrátt fyrir meiðslin. „Cristian Romero er stórkostlegur karakter og frábær fyrirliði. Hann kemur á hverjum morgni inn á skrifstofu til mín þegar hann er í kringum liðið,“ sagði Ítalinn.
Framtíð Romero hjá Tottenham er einnig í umræðunni en hann hefur verið orðaður við Barcelona og Atlético Madrid. Hann skrifaði þó undir nýjan samning við Spurs síðasta sumar sem gildir til ársins 2029.
Á sama tíma verður Djed Spence líklega klár gegn Everton þrátt fyrir kjálkabrot og mun spila með sérstaka hlífðargrímu.