
Nýkrýndi Englandsmeistarinn Mikel Arteta viðurkennir að vegferðin í átt að titlinum hafi tekið á oft á tíðum. Hann hafi jafnvel efast á köflum um að hann væri rétti maðurinn í starfið.
Arteta tók við Arsenal undir lok árs 2019 og hefur snúið öllu við hjá félaginu. Kom hann því aftur í Meistaradeildina, í titilbaráttu nokkur ár í röð og landaði loks Englandsmeistaratitlinum nú, þó einni umferð sé ólokið.
„Ég spurði mig stundum hvort ég væri nógu góður til að leiða þetta lið til titils. Þangað til þú vinnur geturðu ekki sannað það fyrir sjálfum þér,“ segir Arteta, en Arsenal hafði endað í öðru sæti þrjú ár í röð fram að þessari leiktíð.
Liðið er enn fremur komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Paris Saint-Germain og getur unnið keppnina í fyrsta skipti. Arteta og hans menn eru því hvergi nærri hættir.
„Núna viljum við meira,“ segir hann.