fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Arteta tjáði sig um meiðsli lykilmanna

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bukayo Saka gæti snúið aftur til leiks með Arsenal á næstu dögum, samkvæmt knattspyrnustjóranum Mikel Arteta.

Saka hefur verið frá vegna meiðsla á hásin síðan í tapinu gegn Manchester City í úrslitum deildarbikarsins, en Arteta segir bata á góðri leið.

„Það eru framfarir og vonandi er þetta spurning um daga, ekki vikur,“ sagði Arteta.

Arsenal glímir þó við fleiri meiðslavandræði fyrir seinni leikinn gegn Sporting í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Óvissa er með þátttöku Declan Rice. Þá eru Jurrien Timber, Martin Odegaard og Mikel Merino á meiðslalistanum.

Þrátt fyrir það er Arteta bjartsýnn. „Við þurfum að sýna eldmóð. Þetta er stórt tækifæri, bæði í Meistaradeildinni og deildinni,“ sagði hann, en Arsenal hefur gengið erfiðlega undanfarnar vikur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arnar opinberar hóp sinn á morgun – Fyrri leikurinn utan glugga

Arnar opinberar hóp sinn á morgun – Fyrri leikurinn utan glugga
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tjáði sig um næstu skref – Orðaður við starf Guardiola

Tjáði sig um næstu skref – Orðaður við starf Guardiola
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda