fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Kom annað hljóð í Kristján eftir ummæli Helga í beinni – „Ég er nú ekki sammála því“

433
Laugardaginn 11. apríl 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingurinn Tómas Guðmundsson og Blikinn Kristján Óli Sigurðsson voru gestir Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni í tilefni að því að Besta deildin er farin að rúlla.

Meistaradeildin er í fullu fjöri og standa 8-liða úrslit yfir. Bayern Munchen, með Vincent Kompany í brúnni, vann fyrri leikinn við Real Madrid 1-2 og eru Tómas og Kristján á því að liðið sé líklegast til að sigra keppnina.

video
play-sharp-fill

„Bayern-liðið er bara vél og Kompany er að stimpla sig inn sem efnilegasti þjálfari í heiminum í dag, það er bara þannig. Það er ekkert eðlilega gaman að horfa á þá,“ sagði Kristján.

Helgi tók undir þetta en þegar hann sagðist einnig hrifinn af því hvernig Kompany væri til fara á hliðarlínunni kom annað hljóð í Kristján.

„Ég er nú ekki sammála því, flottur strákur samt,“ sagði hann. „Það er frískandi að sjá menn fara ótroðnar slóðir í þessu,“ svaraði Helgi þá.

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham
Hide picture