fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Hneykslaður á Spánverjanum – „Fyrir hvern er þetta gert?“

433
Laugardaginn 11. apríl 2026 19:30

Kepa og frú.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingurinn Tómas Guðmundsson og Blikinn Kristján Óli Sigurðsson voru gestir Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni í tilefni að því að Besta deildin er farin að rúlla.

Arsenal komst aftur á sigurbraut með sigri á Sporting í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni. Liðið hafði tapað tveimur leikjum í röð fyrir það, gegn Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins og Southampton í 8-liða úrslitum bikarsins.

video
play-sharp-fill

Í báðum þessum leikjum var varamarkvörðurinn Kepa Arrizabalaga í marki Arsenal og gerði hann til að mynda stór mistök sem leiddu til marks City í deildabikarnum.

„Er ekki hálf galið að hafa verið með Kepa í markinu í úrslitaleik deildabikarsins og í enska bikarnum gegn Southampton? Fyrir hvern er þetta gert, fyrir utan að friða einhvern 32 ára gamlan markmann sem mun aldrei berjast um byrjunarliðssæti eða neitt þarna?“ spurði Helgi í þættinum.

„Þetta er bara einhver leikþáttur, ég skil gremju Arsenal-stuðningsmanna,“ svaraði Tómas þá áður en Kristján tók til máls.

„Það er ótrúlegt að hann hafi gert þetta tvisvar, brennt barn forðast nú yfirleitt eldinn en ekki Arteta. Þetta er ótrúleg ákvörðun.“

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham
Hide picture