

Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, hefur sést opinberlega í fyrsta sinn eftir að hafa lent í heilsufarsvandræðum fyrir leik Manchester United og Liverpool í síðasta mánuði.
Ferguson, sem er 84 ára gamall, var fluttur á sjúkrahús skömmu fyrir stórleikinn og vakti það áhyggjur meðal stuðningsmanna um allan heim. Nokkrum vikum síðar missti hann einnig af verðlaunahátíð LMA-samtakanna, sem jók enn frekar vangaveltur um heilsu hans.
Nú hafa þó birst myndir af Skotanum þar sem hann brosir á veitingastað í Wilmslow, skammt frá Manchester. Ferguson stillti sér upp með stuðningsmanni sem birti myndina á samfélagsmiðlum og sagði stundina hafa verið ógleymanlega.
„Ég var ekki skjálfandi af því að ég hitti fótboltagoðsögn heldur mann sem hafði gríðarleg áhrif á feril fyrirmyndarinnar minnar, Cristiano Ronaldo,“ skrifaði stuðningsmaðurinn.
Myndin vakti mikla athygli meðal stuðningsmanna Manchester United sem fögnuðu því að sjá Ferguson við góða heilsu.