
Cristiano Ronaldo var að sjálfsögðu valinn í landsliðshóp Portúgals fyrir HM í sumar í dag og stefnir þar með í að hann spili á sínu sjötta heimsmeistaramóti, sem væri met.
Ronaldo, sem er 41 árs og leikur með Al-Nassr í Sádi-Arabíu, er markahæsti landsliðsmaður sögunnar með 143 mörk í 226 leikjum.
Hann sleppur við bann í keppninni þrátt fyrir að hafa fengið rautt spjald í undankeppninni og verður því gjaldgengur í riðlakeppni mótsins.
Portúgal er í riði með Kongó, Úsbekístan og Kólumbíu á mótinu í sumar.