fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Leikmenn Arsenal skutu hressilega á gagnrýnendur á djamminu – „Þau hlæja ekki lengur“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikmenn Arsenal svöruðu margir hverjir gagnrýnisröddum undanfarna mánuði og ár í titilfögnuði liðsins í gær.

Það varð ljóst með jafntefli Manchester City gegn Bournemouth í gær að Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár. Leikmenn horfðu á leikinn saman og fögnuðu innilega að honum loknum.

Þá sáust nokkrir leikmenn skjóta aðeins á gagnrýnendur. Piero Hincapie drakk úr Arsenal-brúsa, en enskir miðlar gerðu mikið úr því eftir sigur Manchester City á Arsenal í síðasta mánuði þegar stuðningsmaður bláliða drakk úr brúsa sem hann sagði innihalda tár Arsenal-mann. Fyrirliðinn Martin Ödegaard drakk einnig úr eins brúsa síðar um kvöldið.

Bukayo Saka hélt þá eldræðu fyrir myndvélarnar. „Þau hlógu og grínuðust í 22 ár. Þau hlæja ekki lengur. Þessi bikar er að fara að skína skært.“

Leikmenn Arsenal taka á móti sjálfum Englandsmeistaratitlinum eftir leikinn gegn Crystal Palace á útivelli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár – City tókst ekki að vinna á Suðurströndinni

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár – City tókst ekki að vinna á Suðurströndinni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr

Er sjóðheitur biti fyrir sumarið en verður rándýr
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Manchester City gæti þurft að greiða Chelsea bætur

Manchester City gæti þurft að greiða Chelsea bætur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Jason Daði á förum – Aftur í Bestu deildina?

Jason Daði á förum – Aftur í Bestu deildina?