
Liverpool er sagt skoða franska kantmanninn Bradley Barcola hjá Paris Saint-Germain sem mögulegan arftaka Mohamed Salah í sumar.
Barcola hefur átt gott tímabil með PSG og skorað 12 mörk auk þess að leggja upp fimm í Ligue 1 og Meistaradeildinni. Hins vegar eru efasemdir um framtíð hans hjá félaginu vegna harðrar samkeppni um byrjunarliðssæti.
David Lynch, sem fjallar um málefni Liverpool, segir að Barcola sé einn af þeim leikmönnum sem séu efstir á lista félagsins fyrir sumargluggann.
Liverpool þarf að styrkja sóknarlínuna eftir að Salah staðfesti brottför sína frá Anfield og Barcola er talinn henta vel inn í framtíðaráætlanir félagsins.
Frakkinn er þó líklega dýr kostur og fleiri stórlið eru sögð fylgjast grannt með stöðu hans hjá PSG.