fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

PSG komið í úrslit annað árið í röð – Ekki sama flugeldasýning og í fyrri leiknum

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 20:59

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Paris Saint-Germain tryggði sér sæti í úrslitum Meistaradeildar Evrópu með 1-1 jafntefli gegn Bayern Munich í seinni leik liðanna.

Fyrra mark leiksins kom strax á 3. mínútu þegar Ousmane Dembélé skoraði eftir sendingu frá Khvicha Kvaratskhelia.

Það var svo ekki fyrr en í uppbótartíma síðari hálfleiks sem Harry Kane jafnaði en PSG fór áfram.

Frakkarnir höfðu þar með betur samanlagt, 6-5, og slógu út þýska stórliðið eftir tvo skemmtilega leiki. Bayern voru verulega ósáttir með dómgæsluna í leiknum.

Bayern reyndi að sækja jöfnunarmark allan leikinn á heimavelli en vörn PSG stóð vaktina vel og gestirnir héldu forskotinu.

PSG er þar með komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem liðið mætir Arsenal í spennandi úrslitaeinvígi.

PSG hefur titil að verja eftir sigur á síðasta ári en Arsenal hefur aldrei unnið þessa keppni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eftir erfitt tímabil er Real Madrid sagt tilbúið að selja

Eftir erfitt tímabil er Real Madrid sagt tilbúið að selja
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Stuðningsmenn brjálaðir eftir dóm gærdagsins – Vilja fá endurgreiðslu fyrir bókuðum ferðalögum

Stuðningsmenn brjálaðir eftir dóm gærdagsins – Vilja fá endurgreiðslu fyrir bókuðum ferðalögum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan
433Sport
Í gær

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?
433Sport
Í gær

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns