
Mikel Arteta þurfti að taka erfiðar ákvarðanir varðandi byrjunarliðið fyrir leik Arsenal gegn Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Arsenal vann 1-0 og fer þar með í úrslitaleikinn í fyrsta sinn í 20 ár, en fyrri leiknum í Madríd lauk með 1-1 jafntefli.
Í millitíðinni vann Arsenal 3-0 sigur á Fulham í deildinni og valdi Arteta sama byrjunarlið og þá. Athygli vekur að Myles Lewis-Skelly er kominn inn á miðjuna fyrir Martin Zubimendi, sem hefur verið byrjunarliðsmaður mest allt tímabilið.
„Ég fór upp að nokkrum leikmönnum og sagði: Fyrirgefðu, en ég mun velja sama lið og gegn Fulham,“ tjáði Arteta fréttamönnum eftir leikinn í gær.
Hann fagnaði viðbrögðum þeirra sem ekki voru valdir. „Þeir sögðu að þeir yrðu klárir hvenær sem ég þyrfti á þeim að halda og gáfu mér faðmlag.“