

Áhrifavaldurinn Ivana Knoll, sem sló í gegn er hún studdi Króatíu í stúkunni á HM í Katar, vakti mikla athygli þegar hún mætti á skíðasvæði í Sviss í óhefðbundnum klæðnaði.
Knoll, sem er í dag einnig starfandi plötusnúður undir nafninu KnollDoll, kom fram á tónleikum í Nendaz í svissnesku Ölpunum. Eftir settið sitt ákvað hún að skella sér í brekkurnar, klædd bikiníi.

Hún birti myndir af sér á samfélagsmiðlum og hafa þær vakið mikla athygli.
Knoll hefur byggt upp stóran fylgjendahóp eftir HM fyrir fjórum árum og komið fram víða um heim sem plötusnúður. Hún steig meðal annars á svið á stórviðburði tengdum HM nýverið, þar sem hún hélt uppi stemningu fyrir stuðningsmenn.