
David de Gea gæti verið á leið aftur í ensku úrvalsdeildina, en Newcastle ku hafa áhuga á að fá spænska markvörðinn.
De Gea lék með Manchester United frá 2011 til 2023 og vann meðal annars deildina, bikarinn og Evrópudeildina.
Ári eftir brottförina frá United samdi hann við Fiorentina, þar sem hann hefur verið fastamaður síðustu tvö tímabil. Fyrra tímabilið gekk vel, en nú er liðið í fallbaráttu í Serie A.
Newcastle skoðar markvarðamál sín fyrir sumarið. Nick Pope hefur verið gjarn á að meiðast og þá er Aaron Ramsdale hjá félaginu á láni.