fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 17. apríl 2026 21:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland og England mætast í undankeppni HM á Laugardalsvelli á morgun.

A-landslið kvenna hefur mætt Englandi ellefu sinnum, síðast 7. mars í Nottingham þar sem England vann 2-0 í undankeppni HM 2027.

Liðin mættust í fyrsta sinn þann 17. maí 1992 í undankeppni EM 1993. Sá leikur endaði með 4-0 sigri Englands. Seinni leikur liðanna í undankeppninni fór svo fram á Kópavogsvelli 19. júlí sama ár. Ragna Lóa Stefánsdóttir skoraði mark Íslands í 1-2 tapi.

Næstu viðureignir þjóðanna voru í umspili fyrir EM 1995 þar sem leikið var heima og að heiman. Fyrri leikur liðanna fór fram á Laugardalsvelli þar sem Margrét Ólafsdóttir skoraði mark Íslands í 1-2 tapi. England vann seinni leikinn, einnig 2-1, og þar var það Ásta B. Gunnlaugsdóttir sem skoraði mark Íslands.

Átta ár liðu þangað til að þjóðirnar mættust aftur, þá í umspili fyrir HM 2003. Fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli á Laugardalsvelli þar sem Olga Færseth og Erla Hendriksdóttir skoruðu mörkin. Seinni leiknum lauk með 1-0 sigri Englands.

Þvínæst tóku við fjórir vináttuleikir milli þjóðanna á sex árum. England vann þrjá þeirra, 1-0 árið 2004 og 2006 og 4-0 árið 2007. Eini sigur Íslands gegn Englandi kom svo í vináttuleik 16. júlí 2009 þar sem Hólmfríður Magnúsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörk Íslands í 2-0 sigri.

Í þessum ellefu leikjum hefur England unnið tíu sinnum og Ísland einu sinni, en aldrei hefur leikur á milli þjóðanna endað með jafntefli.

Liðin mættast á Laugardalsvelli á morgun kl. 16:30 og er hægt að nálgast miðasölu leiksins á miðasöluvef KSÍ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool hafnaði því að leyfa lykilmanni á skrifstofunni að fara til Sádí Arabíu

Liverpool hafnaði því að leyfa lykilmanni á skrifstofunni að fara til Sádí Arabíu