fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Lögsækja Messi og Argentínu – Sakaðir um svik sem kostaði þá mikla peninga

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 12:00

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lionel Messi stendur frammi fyrir lögsókn í Bandaríkjunum eftir að hafa misst af vináttulandsleik með landsliði Argentínu á síðasta ári.

Fyrirtækið VID, sem sérhæfir sig í skipulagningu íþrótta- og tónlistarviðburða í Miami, hefur höfðað mál gegn Messi og argentínska knattspyrnusambandinu. Fyrirtækið sakar aðila um svik og samningsbrot eftir að Messi spilaði ekki gegn Venesúela í vináttuleik árið 2025.

Samkvæmt málinu greiddi VID um sjö milljónir dollara fyrir réttinn til að halda tvo leiki, gegn Venesúela og Púertó Ríkó, með því skilyrði að Messi spilaði að minnsta kosti 30 mínútur í hvorum leik nema hann væri meiddur.

Messi sat hins vegar á bekknum í leiknum gegn Venesúela og fylgdist með úr stúku, en lék daginn eftir með félagsliði sínu Inter Miami.

VID heldur því fram að fyrirtækið hafi tapað milljónum dala vegna þessa, auk þess sem breyting á leikstað hafi valdið frekara fjárhagstjóni.

Málið hefur vakið mikla athygli, en hvorki Messi né argentínska sambandið hafa enn tjáð sig opinberlega um kæruna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham