fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
433Sport

Kári ómyrkur í máli er hann ræddi atburði gærdagsins – „Óþolandi að einhver einn gæi frá Moldavíu geti haft svona mikil áhrif“

433
Miðvikudaginn 6. júlí 2022 10:05

Kári Árnason.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Íslands- og bikarmeisturum Víkings Reykjavíkur, var, eins og margir, ósáttur við dómgæslu Dumitru Muntean í leik liðsins gegn Malmö í undankeppni Meistaradeildarinnar í gær.

Leiknum lauk 3-2 fyrir Malmö en Víkingar voru færri frá 39. mínútu. Þá fékk Kristall Máni Ingason sitt annað gula spjald fyrir að „sussa“ á aðdáendur heimaliðsins er hann fagnaði jöfnunarmarki sínu. Hann hafði fyrr í leiknum fengið spjald fyrir leikaraskap.

„Hún var náttúrulega ekki góð,“ segir Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, við Fréttablaðið um dómgæsluna í leiknum. „Hann var gríðarlega spjaldaglaður fyrir litlar sakir, rosalega sérstök lína sem hann setur. Það var svolítið verið að sparka á eftir Kristali Mána, sem ég skil alveg, hann er gríðarlega góður leikmaður. Oft er eina leiðin til að stöðva hann að sparka hann niður. Það virtist vera þemað í þessu hjá þeim, þegar hann var búinn að snúa á þá var hann bara tæklaður. Leikmaður sem er búinn að lenda í því, þú getur ekki bókað hann fyrir dýfu því þeir koma alltaf inn rennandi. Þetta getur verið hættulegt.“

Víkingur getur þó ekki áfrýjað dómnum þar sem um tvö gul spjöld var að ræða. „Það eina sem gæti gerst er að þessi dómari fái ekki að dæma aftur. Það skiptir okkur akkúrat engu máli. Við græðum ekkert á því að hann fái ekki að dæma einhvern annan leik en okkar. Það er leiðinlegt að það sé ekkert ferli þar sem hægt er að fá einhverja réttvísi í þetta,“ segir Kári.

„Þetta er frústrerandi fyrir leikmann sem er að reyna að sýna sig á alþjóðlegu sviði. Svo er verið að láta hann heyra það uppi í stúku. Hann sussar á þá eins og hetjurnar í ensku úrvalsdeildinni gera í hverri viku og það er ekkert gert í því. En núna í Svíþjóð er það allt í einu bannað.“

„Það er svo mikið í húfi og það er óþolandi að einhver einn gæi frá Moldavíu geti haft svona mikil áhrif,“ segir Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi Reykjavík, í viðtali við Fréttablaðið.

Seinni leikur liðanna fer fram í Víkinni á þriðjudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni
433Sport
Í gær

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London