Harry Kane mætti ekki til æfinga hjá Tottenham í morgun. Þetta er annar dagurinn í röð þar sem hann mætir ekki. The Athletic greinir frá þessu.
Hinn 28 ára gamli Kane átti að snúa aftur til æfinga í gærmorgun eftir stutt frí. Það gerði hann hins vegar ekki.
Framherjinn hefur verið mikið orðaður við Manchester City í allt sumar. Félagið bauð 100 milljónir punda í framherjann fyrr í sumar. Því tilboði var þó hafnað af Tottenham.
Nú virðist sem svo að Kane ætli að reyna að þvinga félagaskiptum frá Tottenham í gegn.