Evrópumót landsliða, EM 2020 (þrátt fyrir að vera haldið árið 2021) fer loks af stað í kvöld. Þá mætast Ítalía og Tyrkland í opnunarleik mótsins í Róm. Eins og flestir vita er mótið haldið um alla Evrópu í þetta sinn. Það átti að fara fram í fyrra en var frestað sökum heimsfaraldurs kórónuveiru.
Eins og áður kom fram fer leikur kvöldsins fram í Róm, höfuðborg Ítalíu. Ítalska liðið leikur einmitt alla leiki sína í riðlakeppninni þar. Sviss og Wales eru í A-riðlinum með Ítölum og Tyrkjum.
Nú þegar Ísland er ekki með eru flestir sem fylgjast með enska landsliðinu hér á landi. Englendingar telja sig geta farið alla leið.
Ensk blöð hafa skoðað tölfræði leikmanna af vítapunktinum en það er viðbúið að Englendingar gætu farið í vítaspyrnukeppni.
Líklegt er að Harry Kane verði vítaskytta liðsins en Marcus Rashford er einnig nokkuð öflugur. Tölfræði um þetta er hér að neðan.