fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Sverrir Ingi áfram í Meistaradeildinni – Albert og félagar úr leik

Aron Guðmundsson
Þriðjudaginn 15. september 2020 19:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir íslendingar voru í eldlínunni í kvöld með liðum sínum er leikið var í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn fyrir PAOK sem fékk Benfica í heimsókn.

Dimitrios Giannoulis kom PAOK yfir á 63. mínútu. Á 75. mínútu tvöfaldaði Andrija Zivkovic forskot heimamanna.

Rafa Silva minnkaði muninn fyrir Benfica á 94. mínútu en lengra komust Benfica ekki. Virkilega sterkur sigur fyrir PAOK sem halda áfram í næstu umferð keppninnar.

PAOK mætir Krasnodar í næstu umferð. Leikur sem mun skera úr um það hvort liðið kemst í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Albert Guðmundsson var í byrjunarliði og spilaði 58. mínútur fyrir AZ Alkmaar sem keppti á móti Dynamo Kiyv í Kænugarði í Úkraínu.

Heimamenn komust yfir á 49. mínútu leiksins eftir mark frá Gerson Rodrigues. Það var síðan Mykola Shaparenko sem skoraði annað mark Dynamo Kiyv á 86. mínútu.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og eru því Albert og félagar úr leik.

 

PAOK 2 – 1 Benfica
1-0 Dimitrios Giannoulis (’63)
2-0 Andrija Zivkovic (’75)
2-1 Rafa Silva (’94)

Dynamo Kiyv 2 – 0 AZ Alkmaar
1-0 Gerson Rodrigues (’49)
2-0 Mykola Shaparenko (’86)

 

 

Upplýsingar um úrslit og markaskorara fengnar af urslit.net

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára

Nefna stóra breytingu í Vesturbænum milli ára
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði

Rogers fyrsti kostur United en eru með ódýrari kost á blaði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum