fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
433

Hringekja Arsenal, Dortmund og Chelsea – Gengur hún upp?

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 30. janúar 2018 11:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal vonast eftir því að Pierre-Emerick Aubameyang skrifi undir hjá félaginu áður en glugginn lokar á morgun.

Samkomulag er í höfn milli Dortmund og Arsenal en með fyrirvara um að Dortmund kræki í framherja.

Þar kemur Chelsea til sögunnar en Dortmund hefur áhuga á Michy Batshuayi.

Chelsea er til í að leyfa honum að fara en ekki nema að félagið fái inn framherja. Chelsea vill fá Olivier Giroud frá Arsenal.

Arsenal gæti því þurft að hefja leikinn og leyfa Giroud að fara til Chelsea sem yrði til þess að Michy Batshuayi gæti farið til Dortmund.

Koma Michy Batshuayi til Dortmund yrði svo til þess að Aubameyang gæti farið til Arsenal. Hringekja sem þarf að klárast á næstu tveimur dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt mark Caicedo í dag – Skoraði frá miðju

Sjáðu stórkostlegt mark Caicedo í dag – Skoraði frá miðju
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Reynsluboltarnir munu framlengja við Real Madrid

Reynsluboltarnir munu framlengja við Real Madrid