Samfélagsmiðlastjarnan og leikarinn Aron Mola ákvað að opna fyrir spurningar á sögu sinni á Instagram í gær.
Stjarnan var spurð spjörunum úr en það var ein spurning sem vakti sérstaka athygli matarvefsins.
Einn fylgjandi Arons spurði hvort það væri rétt að hann hefði einu sinni unnið á McDonald‘s, en síðasta útibúi staðarins á Íslandi var lokað árið 2009.
„Já, vann mig upp úr grillinu yfir í lúgu 2,“ svaraði Aron.
Þá bætti Aron einnig við í spurningatímanum að hann borði ekki kjöt, eitt af lykilhráefninu í vinsælustu réttum McDonald‘s.