fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Matur

Þetta borðar The Rock á svindldegi: Fjall af sushi og smákökum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Miðvikudaginn 26. september 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn og þúsundþjalasmiðurinn Dwayne Johnson, sem gengur vanalega undir nafninu The Rock, leggur mikið upp úr því að lifa heilbrigðum lífsstíl, stunda líkamsrækt og borða mat.

Þeir sem aðhyllast svipaðan lífsstíl og The Rock, eða reyna það allavega, þekkja hugtakið svindldagur vel, en það merkir í raun einn dag vikunnar þar sem þú sleppir fram af þér beislinu, gúffar í þig öllum lystisemdum lífsins og setur heragann uppá hillu í smá stund.

The Rock birti einmitt myndir af því sem hann borðar á svindldegi á Instagram og magnið af mat sem einn maður lætur ofan í sig er eiginlega óhuggulegt.
Hann byrjaði á því að fá sér gríðarstóran skammt af sushi með gígantísku magni af wasabi í soja sósunni, af því að hann er „stoltur sadisti sem elskar sársauka,“ eins og hann segir sjálfur á Instagram.

Eftir sushi veisluna fékk hann sér síðan hrúgu af afar girnilegum smákökum með mjólkursúkkulaði og hnetusmjöri, en kökunum lýsti hann með þessum orðum:
„Stórar, bragðgóðar og himneskar.“

 

View this post on Instagram

 

The #SundayCheatMeal Cookie Train ?? rolls on… its 1:30am (post Sushi Train) and time for dessert. Let me ES-plain what your eye balls are looking at right now/ Double milk chocolate and peanut butter chip cookies with creamy peanut butter smothered between the two cookies. The camera angle makes these nuggets look small, but they’re huge. How are they you ask? Well, they’re just like my nickname after I drink tequila – Big, tasty & heavenly. I’ll go to hell for that one, but not before I take these cookies to pound town while watching the OG trailblazer himself, Quincy Jones’ doc on Netflix. Love it. I need to have tequila one day with this brilliant man. If you ain’t cheatin’, then you ain’t eatin’ my friends. Enjoy! #SundayCheatMeal #HelloGluttony

A post shared by therock (@therock) on

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa