Bílvelta varð á Kringlumýrarbraut um miðnættið. Ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og að vera án ökuréttinda. Sex til viðbótar voru stoppaðir í umferðinni, grunaðir um að undir áhrifum áfengis eða fíkniefna undir stýri. Eitt fíkniefnamál kom líka upp í nótt þar sem lagt var hald á þó nokkuð af E töflum.
Á þessari stundu hefur aðeins borist tilkynning um eitt flugeldaslys en þar hlaust bruni á bringu og hendi. Þá komu upp að minnsta kosti tvö tilvik þar sem eignaspjöll voru unnin á vinnuvélum með flugeldum.





