fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Agnes biskup með tillögu til bókaklúbba landsins: „Umræðurnar yrðu örugglega fjörugar“

Ari Brynjólfsson
Þriðjudaginn 1. janúar 2019 13:20

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, lagði áherslu á mikilvægi þess að mæta nýju ári með bjartsýni og æðruleysi í nýársprédikun sinni sem hún flutti í Dómkirkjunni í dag. Notaði hún einnig tækifærið til að óska Úkraínumönnum til hamingju með nýstofnaða þjóðkirkju en tengsl þeirra við rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna hafa verið viðkvæm síðan deilurnar um Krímskaga hófust árið 2014.

Í predikuninni stakk biskup upp á að leshópar eða bókaklúbbar tækju upp á því að lesa eina af bókum Biblíunnar. „Umræðurnar yrðu örugglega fjörugar.“

Hún sagði síðan:

„Manneðlið er samt við sig hvort heldur árið er 2 eða 2000. Í menntaskóla las ég bókina 1984 eftir George Orwell. Þar er framtíðarsýnin ógnvænleg þegar fylgst er með hverju fótmáli borgaranna. Ekki grunaði okkur unglingana fyrir vestan að slíkt tilheyrði raunveruleikanum eftir nokkra áratugi. Nú er búið að setja reglur um persónuvernd á sama tíma og allt á að vera upp á borði eins og það er orðað.

Agnes óskaði síðan Úkraínumönnum til hamingju:

„Árið 2017 heimsótti græni patríarkinn, yfirmaður orþódoxu kirkjunnar landið í tengslum við ráðstefnu um réttlátan frið við jörðina. Nú hefur hann veitt einni af kirkjum sínum, rétttrúnaðarkirkjunni í Úkraínu sjálfstæði frá rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Þetta er liður í sjálfstæðisbaráttu Úkraínu og af því tilefni sagði Petro Poroshenko forseti Úkraínu að sjálfstæði kirkjunnar væri sigur hins góða og ljós í myrkrinu.“

Hún beindi svo spjótum sínum að þingmönnum og opinberri umræðu:

Siðferðileg mál koma oft upp í opinberri umræðu. Rætt hefur verið um það hvernig við tölum við hvert annað og um hvert annað. Alþingismenn glíma viðsiðferðileg álitamál þegar setja þarf lög eða breyta þarf lögum eins og til dæmis þegar fjallað er um líf og lífslok. Það er þörf á að allir vandi sig, hlusti á og virði ólík sjónarmið og að almenningur leggi sitt að mörkum og taki þátt í umræðunni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu

Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Bera fyrirtæki ábyrgð á hvíld starfsmanna sinna?: „Ofþreyta er talin valda milli 10-20% slysa“

Bera fyrirtæki ábyrgð á hvíld starfsmanna sinna?: „Ofþreyta er talin valda milli 10-20% slysa“
Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“
Fréttir
Í gær

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA